Gæðastjórnunarkerfi

Frumherji er faggilt skoðunarstofa á sviði skoðana á gæðastjórnunarkerfum í byggingariðnaði og sinnir því eftirliti fyrir hönd Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Skjala- og virkniskoðun gæðastjórnunarkerfa

Frumherji hf. býður upp á faggiltar skoðanir á gæðastjórnunarkerfum hönnuða, hönnunarstjóra, byggingastjóra og iðnmeistara.

Panta skoðun (vefbeiðni)

Athugið að ekki þarf að senda gögn með beiðni um virkniskoðun.

Spurningar og svör HMS

 

Ferli skjalaskoðunar

Við skjalaskoðun er farið yfir hvort gæðastjórnunarkerfið uppfylli þær kröfur sem settar eru fram í gildandi lögum um mannvirki og byggingarreglugerð ásamt leiðbeiningum og skoðunarhandbókum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um gæðastjórnunarkerfi. Farið er yfir hvort gert hafi verið ráð fyrir vistun skjala sem viðkoma starfsemi og byggingarleyfisskyldum verkum viðkomandi aðila og hvort í kerfinu sé lýsing á innra eftirliti með eigin verkum ásamt gátlista til notkunar við eftirlitið. Í kerfi byggingarstjóra er einnig gerð krafa um lýsingu á lokaúttekt og undirbúningi hennar í samræmi við kafla 3.9 í byggingarreglugerð, þar sem meðal annars er gengið frá skýrslu yfir allar úttektir og frágangi handbókar. Bent er á að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út leiðbeiningar nr. 16.1.1 um gerð handbókar mannvirkis.

 

Ferli virkniskoðunar

Í virkniskoðun er farið yfir hvort virkni kerfisins sé í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og leiðbeiningar og skoðunarhandbækur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um gæðastjórnunarkerfi. Við skoðun eru eitt eða fleiri verk rakin og m.a. kannað hvort viðeigandi gögn hafi skilað sér á rétta staði inn í gæðastjórnunarkerfið. Farið er sérstaklega yfir hvort eftirlit með eigin verkum (innri úttekt) hafi farið fram í viðkomandi verki í samræmi við verksvið viðkomandi aðila samkvæmt byggingarreglugerð. Að auki er farið yfir hvort búið sé að lagfæra athugasemdir sem gerðar voru í skjalaskoðun og skrá úrbætur, hafi slíkar athugasemdir verið gerðar.

Við gerð gæðastjórnunarkerfa er bent á leiðbeiningar og skoðunarhandbækur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um gæðastjórnunarkerfi sem og byggingarreglugerð.

Við bendum á netfangið bygg@frumherji.is ef þörf er á frekari upplýsingum.

Athygli er vakin á því að einnig þarf að sækja um skráningu gæðastjórnunarkerfis hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Algengar spurningar

Á heimasíðu Frumherja, undir gæðastjórnunarkerfi er hlekkurinn Panta skoðun.  Ýtt er á hlekkinn og við það opnast vefbeiðnasíða. Þú skráir þær upplýsingar sem beðið er um og ýtir á „senda beiðni“.

Ef um skjalaskoðun er að ræða og kerfið er á rafrænu formi þá er hægt að senda gæðakerfið sem viðhengi með beiðninni t.d. á pdf, zip eða rar formi. Ekki þarf að senda kerfið sem viðhengi þegar beðið er um virkniskoðun þar sem fagaðilinn (hönnuður, byggingarstjóri, iðnmeistari) þarf að vera viðstaddur skoðunina. Haft verður samband við fagaðilann varðandi heppilegan úttektartíma í virkniskoðun. 

Skjalaskoðun fer fram án þess að fagaðili (hönnuður, byggingarstjóri, iðnmeistari) sé viðstaddur. Skoðunarmaður skoðar hvort kerfið er tilbúið til að taka á móti þeim gögnum sem farið er fram á og sendir að því loknu skýrslu í tölvupósti til fagaðila og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

Virkniskoðun fer fram að viðstöddum fagaðila. Eftir að beiðni um skoðun berst hefur skoðunarmaður samband við fagaðila og gefur honum tíma í skoðun. Virkniskoðun fer yfirleitt fram í gegnum fjarfundarbúnaðinn MS Teams og fagaðili fær sent fundarboð með hlekk sem hann opnar á tilsettum fundartíma.

Í skjalaskoðun er verið að kanna hvort kerfið sé tilbúið til að taka á móti gögnum sem krafa er um að séu vistaðar, hvort búið sé að skrá þær verklýsingar í kerfið sem farið er fram á og hvort vísað sé á rétt fyrirmæli s.s. lög um mannvirki, byggingareglugerð, leiðbeiningar við byggingarreglugerð og skoðunarhandbækur gæðastjórnunarkerfa fyrir viðeigandi fagssvið (byggingarstjóri, hönnuður, iðnmeistari)

Við virkniskoðun er farið yfir hvort gæðastjórnunarkerfið hafi verið notað á þann hátt sem  krafist er, gögn hafi verið vistuð, eigið innra eftirlit hafi farið fram o.s.frv.

Við undirbúning skoðunar er gott að hafa til hliðsjónar skoðunarhandbækur og leiðbeiningar vegna gæðastjórnunarkerfa ásamt skoðunarskýrslu. Þessi gögn má finna undir hverju fagsviði inni á heimasíðu HMS.

Skoðunarskýrsla, sem einnig er að finna á sama stað, er jafnframt gátlisti sem skoðunarmaður notar við skjala– og virkniskoðun gæðastjórnunarkerfisins. Ef skýrslan er notuð við eigin yfirferð kerfisins áður en til skoðunar kemur þá ætti hún að leiða fagaðilann áfram við undirbúninginn og minnka þannig möguleikann á athugasemdum við skoðunina.

Ef gerðar eru athugasemdir við skoðun, þá þarf fagaðili ýmist að lagfæra kerfið innan ákveðinna tímamarka eða fá endurskoðun á kerfið og fer það eftir fjölda athugasemda og alvarleika þeirra, sjá nánar í verklagsreglu HMS nr. 9.007 

Fagaðili (eða fyrirtæki hans eftir atvikum) greiðir fyrir skoðun og fyrir endurskoðun á gæðastjórnunarkerfinu ef til þess kemur.

Sjá verðskrá.

Staðsetning - Einhella

Bóka tíma í einstaklings- eða túlkapróf

Til þess að bóka tíma í einstaklings- eða túlkapróf þarf að fylla út formið hér að neðan. Haft verður samband við þig með næsta lausa tíma.

Einstaklings- eða túlkapróf

Samskipti kunna að vera vistuð í gagnagrunni okkar. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hér

Bóka tíma í lespróf

Til þess að bóka tíma í lespróf þarf að fylla út formið hér að neðan. Haft verður samband við þig með næsta lausa tíma.

Lespróf

Samskipti kunna að vera vistuð í gagnagrunni okkar. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hér

Sparaðu þér sporin!

Núna getum við sótt bílinn og skilað honum skoðuðum heim eða í vinnuna á höfuðborgarsvæðinu. 2.300 kr. bætast við skoðunargjaldið.

Þú getur pantað skutl með því að fylla út formið hér að neðan.

Panta skutl