Þú ert hér: Forsíða > Þjónusta > Skipaskoðanir > Faggiltar skoðanir
Faggiltar skoðanir

Umfang skoðana

Skipaskoðunarsvið Frumherja hf. er faggilt skoðunarstofa af A-gerð. Stofan er því hæf til að annast eftirfarandi skoðanir á skipum og bátum í umboði Siglingastofnunar Íslands;

  • Búnaðarskoðun.
  • Vélskoðun.
  • Bolskoðun tré, plast og stál.
  • Rafmagnsskoðun.
  • Skoðun á öxli og stýri.
  • Eftirlit með nýsmíði.
  • Eftirlit með breytingum.
  • Eftirlit með viðgerðum.
  • Tjónaskoðun.
  • Þykktarmæling.
  • Fjarskiptaskoðun.
  • Skoðun brunaviðvörunarkerfa og búnaðar.


Eftirlit með skoðunarstofunum

Skoðunarstofan eru undir eftirliti Siglingastofnunar Íslands, Post- og fjarskiptastofnunar og faggildingarsviðs Einkaleyfastofu. Hún er faggilt samkvæmt staðlinum ÍST EN ISO/IEC 17020:2004 en honum er fyrst og fremst ætlað að tryggja sjálfstæði, hlutleysi, ráðvendni og hæfni skoðunarstofunnar. Faggildingarsvið Einkaleyfastofu heimsækir skoðunarstofuna árlega og gerir úttekt á gæðakerfi hennar og hæfni skoðunarmanns. Siglingastofnun Íslands er faggildingaraðilanum til aðstoðar við úttekt á skoðunarmanni auk þess sem eftirlitsmenn hennar fara í samanburðarskoðanir til að fylgjast með hvort skoðunarmenn skoðunarstofunnar séu að framkvæma skoðanir sínar samkvæmt settum kröfum.

Nýr skoðunarferill

Skoðunarferillinn byrjar á upphafsskoðun á nýjum skipum. Eftir það hefst 4 ára skoðunarferill;

  • Eftir 1. ár - Aðalskoðun á búnaði allra skipa. Bolskoðun tréskipa.
  • Eftir 2. ár - Aðalskoðun á búnaði og vél allra skipa. Milliskoðun á bol, öxli og rafmagni allra skipa.
  • Eftir 3. ár - Aðalskoðun á búnaði allra skipa. Bolskoðun tréskipa
  • Eftir 4. ár - Aðalskoðun á búnaði, vél, öxli, rafmagni og bol allra skipa.
  • Sé niðurstaða aðalskoðunar “2” felur það í sér endurskoðun innan allt að 3ja mánaða.


Jafnframt er kveðið á um sveigjanleika í skoðunum þannig að skoðun getur farið fram á tímabilinu 3 mánuðum fyrir til 3 mánuðum eftir áætlaðan skoðunardag.

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is