Þjónusta
Löggilding mælitækja
Öll
mælitæki sem notuð eru í viðskiptum verða að vera löggilt.
Löggildingarsvið býður upp á löggildingu á ósjálfvirkum vogum,
rennslismælum, vínmálum, raforkumælum og rennslismælum fyrir heitt og
kalt vatn.
Prófun mælitækja
Löggildingarsvið býður einnig
upp á þá þjónustu að kanna nákvæmni ýmissa mælitækja. Sum mælitæki er
ekki heimilt að löggilda (t.d. ef þau uppfylla ekki nákvæmniskröfur
stjórnvalda að einhverju leyti) en eigendur þeirra vilja samt fá
upplýsingar um hversu nákvæm þau eru.
Smásala á lóðum
Löggildingarsvið hefur umboð fyrir þýska lóðaframleiðandann Haigis og sér um að útvega lóð af öllum stærðum og gerðum.