Löggildingarsvið annast löggildingar og prófanir á mælitækjum sem notuð eru við almenn viðskipti. Þetta eru m.a. vogir, söludælur fyrir eldsneyti, raforkumælar og vatnsmælar. Tækin eru af öllum stærðum og gerðum hvort sem það eru bílavogir sem taka allt að 60 tonn eða lítill vatnsmælir fyrir hitaveituvatn.
Starfsemin nær til allra landshluta og ferðast tæknimenn löggildingarsviðs um landið vítt og breitt við störf sín.
Sviðsstjóri löggildingarsviðs er
Pálmar Þórisson.