Starfsemi Frumherja hf. hófst þann 4. febrúar 1997 þegar ákveðið var að skipta upp starfsemi Bifreiðaskoðunar Íslands hf. Í dag er starfsemi Frumherja skipt í eftirfarandi svið:
- Bifreiðaskoðunarsvið (ökutækjaskoðanir)
- Orkusvið (rekstur og umsýsla mæla fyrir veitufyrirtæki)
- Löggildingasvið (löggilding mæla og voga)
- Rafmagnssvið (rafskoðanir)
- Matvælasvið (hreinlæti og aðbúnaður í sjávarútvegi)
- Skipaskoðunarsvið (skoðanir á skipum og bátum)
- Ökuprófasvið (framkvæmd ökuprófa á landinu öllu)
Dótturfélag Frumherja er Hreinsinbílar ehf. (
www.hreinsibilar.is) sem starfar að hreinsunum og fóðrunum frárennslislagna.
Frumherji hf. er stærsta félag sinnar tegundar á Íslandi og hjá því starfa rúmlega 100 manns á um 30 stöðum á landinu öllu. Öflugur hópur starfsmanna hefur lagt grunninn af farsælu starfi Frumherja hf. á liðnum árum. Stefna fyrirtækisins er að hafa ávallt í þjónustu sinni hæfileikaríkt starfsfólk með mikla fagþekkingu. Fyrirtækið kappkostar að veita starfsfólki sínu góðan aðbúnað og setur öryggi þess og viðskiptavina sinna í öndvegi. Hjá Frumherja hf. er til staðar öflugt gæðastjórnunarkerfi sem er vottað samkvæmt alþjóðlegum faggildingarstöðlum.