Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Ekki lenda í biðröð !
Allt að 2ja til 3ja tíma biðröð í skoðun í lok hvers mánaðar getur myndast.

Eftir að vanrækslugjald fór að leggjast á bíla sem ekki eru færðir til skoðunar á réttum tíma hafa verið miklar annir á skoðunarstöðvum Frumherja. Mest er að gera í lok hvers mánaðar og getur þá biðtíminn eftir skoðun verið allt að þrjár klst. Frumherji vill því hvetja viðskiptavini sína til að mæta með bíla sína í skoðun fyrr í mánuðinum sé þess nokkur kostur.  Einnig er gott fyrir þá sem ekki eru á síðasta snúningi með að færa bifreið sína til skoðunar að bíða fram yfir mánaðamót til að komast hjá langri bið eftir skoðun.
 

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is