Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Tryggur - bílahjálp
Frumherji hefur hafið starfsemi á nýju sviði, bílahjálparsviði. Starfsemin gengur út á útvega ökumönnum aðstoð vegna bilana í bílnum sem þeir eru á. Ýmislegt getur nefnilega komið upp á sem veldur því að ökuferðin endar snögglega, eða hreinlega að ekki er hægt að komast af stað. Vandamálin eru af ýmsum toga, en sum algengari en önnur, t.d. eldsneytisleysi, rafmagnsleysi eða sprungið dekk.

Með samstarfi við tryggingafélagið VÍS hefur starfsemin komist á fullan skrið og er þjónustan markaðsett undir nafninu Tryggur - bílahjálp. Allir geta fengið þjónustu en viðskiptavinir VÍS njóta sérkjara. Þjónustusíminn er 800-9000.


Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is