Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Mótorhjóladagar hjá Frumherja
Undanfarið hefur Frumherji hf staðið fyrir sérstökum skoðunardögum á mótorhjólum í samstarfi við mótorhjólaáhugamenn. Fyrst var riðið á vaðið þann 29. maí í skoðunarstöð Frumherja í Njarðvík í samstarfi við Erni, Bifhjólaklúbb Suðurnesja. Laugardaginn 12. júní var síðan skoðað í samstarfi við Sniglana að Hesthálsi í Reykjavík og á sama tíma var skoðunardagur Bifhjólaklúbbsins Tíunnar á Akureyri í skoðunarstöðinni þar.

Frumherji bauð upp á grillaðar pylsur og kók fyrir alla, sælgæti og kaffisopa. Góður rómur var gerður að skoðunardögunum á meðal hjólamanna sem mættu vel þrátt fyrir að óhagstætt veður hafi sett strik í reikninginn á Hesthálsi. Frumherji hf vonar að dagskrá daganna í Njarðvík, Hesthálsi og á Akureyri sé vísir að enn frekara samstarfi Frumherja við bifhjólamenn.


Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is