Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Vel heppnaður húsbíladagur
Húsbíladagur Frumherja og Félags Húsbílaeigenda var haldinn á laugardeginum 24. apríl og tókst vel í alla staði. Marga spennandi húsbíla mátti sjá í fjölbreytilegri flóru húsbíla á planinu framan við skoðunarstöðina á Hesthálsi í Reykjavík.

Innandyra var boðið upp kaffi og bakkelsi ásamt pylsum og gosi sem félagsmenn nutu við undirleik frábærra hljóðfæraleikara úr röðum húsbílaeigenda.

Starfsfólk Frumherja þakkar félagsmönnum góða viðkynningu og hlakkar til að endurtaka leikinn að ári.



Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is