Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Útlitsbreyting og kynningarefni
Reglulega getur verið gott að yfirfara og endurskoða útlit merkinga og kynningarefnis fyrirtækja. Við hjá Frumherja gerðum þetta um daginn og breyttum aðeins merki félagsins og stafagerð. Eins og sjá má er enn um gamla og góða merkið að ræða en textinn, nafn fyrirtækisins, var fluttur til. Hann er nú hægra megin við merkið í stað þess að mynda boga yfir það. Jafnframt er stafagerðin í nafninu ný. Litir voru látnir halda sér, tveir bláir litir.


Á sama tíma var hresst upp á bréfsefni og vottorð, reikninga og umslög. Blái sveipurinn var fjarlægður og í staðinn verður bakgrunnur almennt alveg hvítur, þó verður hann bláletur með inngreyptu merkinu á reikningum og greiðsluseðlum. Breytingar þessar munu allar líta dagsins ljós á næstu dögum, vikum og mánuðum, um leið og birgðir eldra efnis klárast. Kostnaði er því haldið í lágmarki.

Nýjar auglýsingar hafa einnig litið dagsins ljós. Meðal þeirra fyrstu eru heilsíðu blaðaauglýsingar sem birst hafa undanfarna daga. Þar er verið að kynna starfsemi bifreiðaskoðunarinnar með tilvísun til daglegra athafna eða með orðaleikjum. Fleiri auglýsingar eru á döfinni, bæði til kynningar á annarri starfsemi okkar, sem og auglýsingar í öðrum miðlum.

Rúm tólf ár eru síðan merkinu var breytt síðast, en upprunalega var það tekið í notkun í lok níunda áratugarins með stofnun Bifreiðaskoðunar Íslands. Bifreiðaskoðunarhluti þess félags varð svo að Frumherja eins og margir þekkja. Merkið hefur því verið verið í notkun í yfir tvo áratugi og mun áfram standa fyrir öryggi og fagmennsku í skoðunar- og prófunarstarfsemi á Íslandi.


Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is