Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Ný skoðunarstöð opnar á Granda
Frumherji hf opnar föstudaginn 8. janúar kl. 10:00 nýja skoðunarstöð fyrir bíla að Hólmaslóð 2 í Reykjavík. Stöðinni er ætlað að auka þjónustuframboð Frumherja hf í vesturhluta borgarinnar og á Seltjarnarnesi. Hún er sú sjöunda í röðinni á höfuðborgarsvæðinu.

Stöðin að Hólmaslóð er vel staðsett í nálægð við íbúahverfi í miðbæ, vesturbæ og á Seltjarnarnesi ásamt því að standa í námunda við öfluga þjónustukjarna í miðborginni og vestur á Granda. Hún er útbúin þeim besta tækjabúnaði til skoðana sem völ er á og aðstaða fyrir viðskiptavini er fyrsta flokks. Hægt er að skoða alla fólks- og sendibíla ásamt minni vörubílum og rútum. Bifhjólaeigendur eru einnig velkomnir og eigendur vagna og ekki síst ferðavagna sem nú þarf orðið að skoða.

Frumherji hf hefur miklar væntingar til fyrirhugaðs reksturs á Granda og vonar að viðskiptavinir taki stöðinni vel.

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is