Frumherji selur bleiku slaufuna
Bleika slaufan er nú til sölu á afgreiðslustöðum Frumherja um allt land. Það er Krabbameinsfélag Íslands sem stendur fyrir söluátakinu, en Bleika slaufan er eins og kunnugt er seld til þess að vekja athygli á brjóstakrabbameini, stuðla að fræðslu um sjúkdóminn og hvetja konur til að nýta sé boð Krabbameinsfélags Íslands um röntgenmyndatöku.
Söluátakið fer fram 1.-15. október ár hvert og í ár er fjórða árið sem Frumherji styður átakið með því að bjóða slaufurnar til sölu í afgreiðslum sínum. Viðskiptavinir Frumherja eru hvattir til að kaupa slaufuna og leggja þannig góðu málefni lið. Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands, www.krabb.is