Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Ökuprófin á strætólóðina á Kirkjusandi
Ökuprófasvið Frumherja hf tók nýlega á leigu lóð og mannvirki svokallaðrar strætólóðar við Kirkjusand í Reykjavík undir starfsemi sína. Unnt verður að nota lóðina undir akstursæfingar, bifhjólapróf og sitthvað fleira sem tengist ökuprófum.

Samstarfsaðili Frumherja á svæðinu er Ökukennarafélag Íslands sem nýta mun lóðina undir kennslu. Með tilkomu lóðarinnar verður unnt að innleiða ýmsar nýjungar í ökunámi á Íslandi og ber þar hæst innleiðing á svokölluðum skrikvagni, en hann líkir eftir akstri í hálku og þjálfar þannig upp færni nemandans við slíkar aðstæður. Þegar er hafin starfsemi á svæðinu, en unnið er að lokafrágangi þess til að það nýtist að fullu. Samstarfsaðilar verkefnisins binda við það miklar vonir og eru þess fullvissir að tilkoma þess leiði til framþróunar í ökunámi hérlendis.

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is