Endurbætur í Klettagörðum og á Dalvegi
Nú standa yfir endurbætur á bifreiðaskoðunarstöðvum Frumherja við Dalveg í Kópavogi og í Klettagörðum í Reykjavík. Snúa þær fyrst og fremst að því að bæta aðstöðu fyrir viðskiptavini beggja stöðvanna með nýjum og endurbættum afgreiðslum. Einnig verður starfsmannaðstaða bætt á stöðvunum. Með endurbótunum, sem ljúka mun fljótlega, mun þjónusta Frumherja verða enn betri en nú er á ofangreindum stöðvum.